Ójá.
Loksins loksins jólafrí

Það byrjaði reyndar á miðvikudaginn eftir íslenskuprófið

Og ég
gæti gengið enn lengra og sagt að ég væri búin að vera í jolafríi
síðan 1. des, þar sem ég tók aðeins 4 próf. Samt fæ ég 21 einingu
út úr þessari önn

Ég elska próflausa áfanga

Ég fór svo með Heiðu og Herborgu að ná í einkunnirnar á
föstudaginn. Og ég er bara mjög sátt

Loksins að fá almennilegar
einkunnir án þess að hafa of mikið fyrir því. Grunnskólastemning
bara

Fyrir utan leikfimi kannski, en hverjum er ekki sama um
leikfimi? Heiðri mínum sem proffanum á heimilinu er samt oggulítið
ógnað þar sem hún móðir mín asnaðist til þess að fá fimm 9ur og
eina 8!! Sem betur fer er þetta seinasta önnin hennar

Jájájá... Nú blómstrar letilífið sem er einungis ógnað af einum
aðila, að nafni Sigurður Thoroddsen sem finnst rosalega sniðugt að
troða á mann vinnu í sæta jólafríinu...
Gaman að því... Ég held að ég yfirgefi ykkur núna og fari að lesa
um einhver skrípi með kolkrabbahausa og mannslíkama og svoleiðis
dúllerí...
-Eydís